15.6.2008 | 19:36
Tölvupóstur til útvarpsstjóra.
Til útvarpsstjóra.
Viðbjóðsleg fyrirlitning á notendum.
Ríkisútvarpið hefur raskað allri dagskrá til að þjóna ákveðnum hópi notenda - nokkuð sem einkastöð getur gert en alls ekki ríkisútvarp með skylduáskrift. Ég er að borga fyrir efni sem ég kæri mig ekki um.
Sá hluti þjóðarinnar sem kærir sig ekki um þetta efni er reyður. Fyrir marga eru sendingar ykkar föst afþreying og eina sjónvarpið. Margir þeirra sem ekki kæra sig um þetta brjálæði er gamalt fólk sem hefur ekkert annað. Það er því fólki sem ríkisrekið sjónvarp á að þjóna.
Ég er svo lánsamur að geta horft á aðrar stöðvar. Ég reyni þó að horfa á fréttir ríkissjónvarpsins. Nú 15. júní ætlaði ég einmitt að gera það á rás eitt plús. Kl. 19.00 þegar fréttirnar áttu að byrja samkvæmt dagskrá var leikur í gangi. - Nú leiklokin hafa tafist. Ég beið dágóða stund með íþróttir sem annars fara gífurlega í taugarnar á mér. Engar fréttir og engin athugasemd - engin afsökun - engin ábending um að fréttirnar féllu niður.
Ég endurtek - Viðbjóðsleg fyrirlitning á notendum. Ef ég hefði þann kost myndi ég segja áskrift á þessari stöð upp og aldrei skipta við hana aftur. Þið getið gert það sem ykkur sýnst. Ef ég ætla að hafa sjónrvarp þá borga ég í ykkar rekstur. Styrki útsendingar íþróttaefnis sem ég kæri mig ekki um.
Að lokum hringdi ég í Ruv til að fá upplýsingar um það sem átti að standa á skjánum. Kurteis kona hlutsaði á reyði mína og benti mér á að ég gæti séð fréttirnar á netinu. Ef notendur eiga að sjá efnið á netinu er hægt að spara mikið í útsendingarkostnaði.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:38 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.